Jón Sigurðsson: Viðbúnaður
bind 1 i Jón Sigurðsson serien
- Format:
- ePub
- Beskyttelse:
- Digital vandmærkning
- Udgivet:
- 22. marts 2023
Leveringstid:
Straks på e-mail
Beskrivelse af Jón Sigurðsson: Viðbúnaður
„Saga hans er saga þjóðar hans og samtímis" segir í fyrsta af fimm bindum um ævisögu Jón Sigurðssonar sem fæddist þann 17. júní árið 1811.
Það bar snemma á gáfum og fróðleiksþorsta Jóns en hann fluttist ungur úr foreldrahúsum til að ljúka stúdentsprófi í Reykjavík og þaðan til Kaupmannahafnar til að leggja stund á háskólanám. Hér fá lesendur innsýn í æsku og uppvöxt Jóns á Hrafnseyri, þátttöku hans í félagsstörfum, persónulega hagi og félagslíf. Dregin er upp lýsandi mynd af aðstæðum á Íslandi þess tíma og störfum Jóns í þágu þjóðfélagsmála.
Jón Sigurðsson I-V er ævisaga þjóðarhetju og leiðtoga Íslands í sjálfstæðisbaráttunni á 19. öld. Ævisagan var upprunalega gefin út í fimm bindum af Hinu Íslenzka Þjóðvinafélagi í Reykjavík á árunum 1929-1933. Verkið er viðamikið og gefur innsýn í afdrifaríka ævi Jóns Sigurðssonar og sjálfstæðisbaráttuna við Dani. Höfundur bókanna er Páll Eggert Ólason.
Páll Eggert Ólason (1883-1949) var íslenskur doktor og prófessor í sagnfræði. Eftir stúdentsprófið lauk hann embættisprófi í lögfræði við Háskóla Íslands og hlaut síðar doktorsnafnbót fyrir rit sitt um Jón Arason. Páll sinnti fjölbreyttum störfum í gegnum tíðina en þar má helst nefna stöðu bankastjóra Búnaðarbankans, skrifstofustjóra fjármálaráðuneytisins og bæjarfulltrúa í Reykjavíkurborg. Þekktastur er Páll þó fyrir fræða- og ritstörf sín sem skipuðu stóran sess á starfsferli hans. Hann var afkastamikill rithöfundur enda fróður um sögu Íslands og afar leikinn við heimildavinnu. Ritverk hans eru bæði yfirgripsmikil og efnisrík en meðal þeirra eru samantekt á Íslenzkum æviskrám, Ævisaga Jóns Sigurðssonar I-V og Menn og menntir siðaskiptaaldarinnar á Íslandi I-IV.

Find lignende bøger
Bogen Jón Sigurðsson: Viðbúnaður findes i følgende kategorier:
- Biografier, litteratur og litteraturstudier
- Samfund og samfundsvidenskab > Samfund og kultur: generelt
- Samfund og samfundsvidenskab > Politik og regering
- Historie og arkæologi > Historie > Historie: specielle begivenheder og emner > National selvstændighed og uafhængighed, postkolonialisme
- Kvalifikatorer: geografi > Europa > Nordeuropa, Skandinavien > Island
- Kvalifikatorer: geografi > Europa > Nordeuropa, Skandinavien > Danmark
- Kvalifikatorer: tidsperiode > 1500 til i dag > 19. århundrede, 1800 til 1899 > Tidlige 19. århundrede, 1800 til 1850
© 2025 Book Solutions ApS Registered company number: DK43351621