Bøger af Grimmsbræður
-
9,99 kr. Systurnar Eineyg og Þríeyg litu systur sína Tvíeygu hornauga og voru vondar við hana því hún var í útliti eins og fólk er flest. Dag einn situr Tvíeyg ein úti í skógi og grætur örlög sín þegar henni birtist kona. Konan segist vilja sjá til þess að Tvíeyg þurfi aldrei að svelta og færir henni töframátt. Þegar systurnar Eineyg og Þríeyg fer að gruna að ekki sé allt með felldu sér Tvíeyg við þeim og svæfir þær, eða svo heldur hún. Nú eru góð ráð dýr fyrir Tvíeygu sem enn á ný þarf að leita á náðir konunnar með töframáttinn. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
Fra 9,99 kr. Ævintýrið Tófan og úlfurinn fjallar um sérkennilega vináttu úlfsins og tófunnar. Úlfurinn vildi ráða yfir tófunni sem þurfti að beita brögðum til að fá sínu framgengt. Einu sinni sem oftar vildi úlfurinn að tófan fyndi eitthvað handa honum að éta enda gráðugur mjög. Tófan reyndi hvað hún gat að benda úlfinum á að fara varlega í átinu en úlfurinn lét sér ekki segjast. Þegar úlfurinn kemst á snoðir um saltað kjöt í tunnu hjá bóndanum biður hann tófuna um að fylgja sér þangað. Tófan fylgir úlfinum að kræsingunum en hefur ekki í hyggju að éta sig pakksadda með úlfinum. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Soldán er gamall en tryggur hundur. Bóndanum finnst Soldán orðinn frekar lúinn og ekki gera neitt gagn lengur og vill því losa sig við hann. Kona bóndans vorkennir hins vegar Soldáni og biður bóndann um að hlífa honum. Soldán heyrir samtal hjúanna og ákveður að sýna tryggð sína í verki. Hann biður besta vin sinn, úlfinn, um aðstoð og saman setja þeir á svið leikrit þar sem Soldán fær að vera í aðalhlutverki sem bjargvættur fjölskyldunnar. Soldán gleymir hinsvegar að gera ráð fyrir ráðabruggi úlfsins sem biður hann um að gera sér greiða á móti og þá reynir á trygglyndið við húsbóndann. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Gamall fjárhundur ákveður að strjúka frá húsbónda sínum í von um að finna meira æti annarsstaðar. Hann mætir grátittlingi sem fylgir honum til borgarinnar þar sem þeir örkuðu á milli búða og stálu sér til matar. Sagan endar þó ekki vel fyrir fjárhundinn því honum er ráðinn bani en grátittlingurinn hefnir ófara hans með eftirminnilegum hætti. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Þegar fátækur bóndi eignast 13. barnið sitt heldur hann af stað út á þjóðveginn til að finna skírnarvott til að tryggja barninu bjarta framtíð. Á vegi hans verða Guð almáttugur, Kölski og dauðinn sjálfur. Eftir nokkra umhugsun velur bóndinn fátæki dauðann sem skírnarvott því hann gerir ekki upp á milli nokkurs manns. Barnið vex og er orðið að ungum pilti þegar dauðinn færir því skírnargjöfina og gerir það að frægum lækni. Það eina sem hann þurfti að gera var að fylgja fyrirmælum dauðans um hverjum ætti að bjarga og hver ætti að deyja. Innan skamms er pilturinn orðinn frægasti læknir í heimi sem fylgir fyrirmælum dauðans í einu og öllu eða allt þar til hann er kallaður til að hlúa að konungnum. Ungi pilturinn stendur nú frammi fyrir þvi að að taka ákvörðun um afdrif konungsins þess minnugur að dauðinn gerir ekki upp á milli nokkurs manns. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
Fra 9,99 kr. Skógarvörður finnur lítinn dreng úti í skógi og ákveður að taka hann með sér heim og ala upp sem sinn eigin. Drengurinn ólst upp við gott atlæti ásamt dóttur skógarvarðarins. Eldabuskunni var hins vegar ekki vel við drenginn og þegar dóttir skógarvarðarins heyrir hana segjast ætla að sjóða drenginn í potti taka þau til sinna ráða til að koma drengnum undan áformum eldabuskunnar.Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Einu sinni var kóngur sem vildi finna biðil fyrir fögru dóttur sína. Kóngsdótturinni leist ekkert á yngismennina sem faðir hennar leiddi fram, fann þeim allt til foráttu og gerði grín að þeim. Kónginum varð þá nóg um og krafðist þess að hún skyldi giftast fyrsta manninum sem bæri að garði, hver sem hann væri. Sá reyndist vera fátækur tónlistarmaður sem bjó í litlu, hrörlegu koti rétt fyrir utan konungshöllina. Kóngsdóttirin, sem nú þurfti að sinna húsverkum og þjóna bónda sínum, dauðsá nú eftir því að hafa hafnað öllum ríku biðlunum. Sagan endar þó ekki hér því fátæki tónlistarmaðurinn er ekki allur þar sem hann er séður. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Systurnar Mjallhvít og Rósrauð voru augasteinar móður þeirra sem var fátæk ekkja. Systurnar voru mjög nánar og hétu hvor annarri því að þær skildu aldrei skiljast að. Skógurinn var þeirra griðarstaður þar sem þær vöppuðu um, tíndu ber og fylgdust með dýrunum. Dag einn um hávetur ber björn að dyrum hjá mæðgunum og biður um að fá að koma inn í hlýjuna. Mæðgurnar taka ástfóstri við björninn og sárnar mjög þegar hann yfirgefur þær um vorið. Síðar um sumarið verður á vegi þeirra systra óþakklátur dvergur og þá er nú gott að þekkja til bjarnarins sem reynist ekki allur þar sem hann er séður. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Í ævintýrinu um Skraddarann ráðagóða segir frá ungri drambsamri kóngsdóttur sem lagði gátur fyrir alla biðla sína en engum þeirra tókst að ráða þær. Þegar litla ráðagóða skraddaranum tókst hið ómögulega, að ráða gátu kóngsdótturinnar, varð uppi fótur og fit í höllinni. Kóngsdóttirin leggur því aðra þraut fyrir skraddarann sem nú þarf að dvelja í bjarnarbúri eina nótt. Komist hann lifandi frá þeirri raun mun kóngsdóttirin standa við orð sín og giftast honum. Nú reynir á ráðagóða skraddarann gegn birninum ógurlega. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Einu sinni var fátækur viðarhöggsmaður sem átti einn son. Viðarhöggsmaðurinn átti sér þá ósk að pilturinn fengi góða og þarfa menntun svo hann gæti séð fyrir föður sínum í ellinni. Pilturinn fer í menntaskóla en tekst ekki að ljúka námi vegna fjárskorts og snýr því heim aftur. Dag einn þegar feðgarnir eru úti í skógi að höggva eldivið, ráfar pilturinn lengra inn í skóginn. Undir stóru eikartré finnur hann litla glerflösku og inni í flöskunni er skrýtið kvikyndi sem talar. Kvikyndið, sem líkist froski, biður piltinn um að hjálpa sér út úr flöskunni. Þegar pilturinn tekur tappann úr flöskunni flýgur upp úr henni undarleg vera og ekki var hún frýnileg. Nú var úr vöndu að ráða fyrir piltinn sem mátti beita kænsku sinni og visku til að skáka púkanum sem kom upp úr flöskunni.Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Krabbi var fátækur bóndi sem aflaði aukatekna við að selja við. Einu sinni sem oftar lá leið hans til borgarinnar til að afhenda viðarhlass til læknisins. Þegar þangað kemur og hann sér hvar læknirinn gæðir sér á kræsingum miklum óskar hann þess innilega að vera líka læknir. Aðspurður segist læknirinn geta gert bóndann að lækni á svipstundu. Hann þurfi bara að festa skilti á hurðina hjá sér þar sem stendur að þar búi alvitur læknir. Þegar til hans leitar herramaður og biður hann um aðstoð við að leysa sakamál, heldur Alvitur ásamt konu sinni til hallar herramannsins í von um að leysa málið og uppskera ríkulega. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Eftir að haninn og hænan höfðu farið á stúfana í hnetuleit og étið hvor sína fyllina af hnetum fóru þau að rífast um það hvernig þau ættu að komast heim. Þau voru pakksödd og nenntu ekki fyrir nokkra muni að ganga heim. Hananum tekst að snara önd fyrir öfurlítinn vagn sem hann hafði útbúið og þannig bruna þau af stað. Seint um kvöldið koma þau að gistihúsi og gestgjafinn samþykkir eftir töluverðar mótbárur að hleypa þeim inn. Það renna þó á hann tvær grímur þegar hann áttar sig á því hvernig í pottinn er búið.Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Hjón ein áttu sjö syni en áttu sér þá ósk heitasta að eignast dóttur. Þegar þeim verður loks að ósk sinni er stúlkunni vart hugað líf og ákveðið er að skíra hana snemmskírn. Bræðurnir eru sendir að læknum til að sækja skírnarvatn en þeir missa fötuna ofan í lækin og þora ekki heim. Faðir þeirra heldur að drengirnir séu að leika sér og kallar yfir þá bölvun í reiði sinni. Stúlkan braggast og elst upp án vitneskju um bræður sína sjö. Þegar hún heyrir á tal tveggja eldri kvenna kemst hún á snoðir um örlög bræðra sinna og ákveður að finna þá. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Í ævintýrinu um Bláa ljósið segir frá hermanni sem leystur er undan herskyldu sinni við konunginn, slippur og snauður. Á vegi hermannsins verður kona sem aðstoðar hann og gefur honum að borða. Konan reynist vera norn í dulargervi sem krefst þjónustu hermannsins að launum. Eitt af verkefnum hermannsins í þjónustu nornarinnar er að fara niður brunn og sækja blátt ljós. Hermanninn grunar nornina um græsku og þykist ekki finna ljósið en heldur því fyrir sjálfan sig. Bláa ljósið reynist mikill happafengur fyrir hermanninn sem sér sér leik á borði og hyggur á hefndir gagnvart grimma konungnum. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
Fra 9,99 kr. Skraddari nokkur, smávaxinn en hugprúður, sat við sauma þegar bóndakona býður honum að kaupa af sér hunang. Skraddarinn smyr nýkeyptu hunanginu á væna brauðsneið og lætur standa á meðan hann klárar verkin. Hunangið laðar til sín flugnager mikið sem skraddarinn fargar með einu slagi. Hreykinn af afreki sínu, saumar skraddarinn linda um mittið á sér með slaogorðinu "Sjö í einu höggi" og leggur af stað út í hinn stóra heim til að segja frá afreki sínu. Þegar skraddarinn kemur að höll konungsins þykir hermönnum konungs í fyrstu ekki mikið til þessa væskilslega manns koma. Það renna þó á þá tvær grímur þegar þeir sjá að þar fari mögulega stríðsmaður mikill sem slegið hefur sjö í einu höggi.Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Fátæk þjónustustúlka er á ferð um skóginn með húsbóndum sínum þegar ræningjar ráðast á þau. Þjónustustúlkan kemst undan en villist í þykkum skóginum. Kemur þá aðvífandi hvít dúfa sem færir henni lítinn gylltan lykil. Lykillin gengur að stóru tré þar sem stúlkan getur borðað allt sem hana langar í. Dúfan færir henni nýjan lykil að öðru tré og stúlkan nýtur þeirra lystisemda sem þar er að finna. Dag einn biður dúfan stúlkuna um að gera sér greiða. Hún biður stúlkuna um að finna hring hjá gamalli konu í skóginum. Stúlkan vill hún ólm endurgjalda gjafmildi dúfunnar og heldur af stað út í skóg. Gamla konan er þó ekki öll þar sem hún sýnist og stúlkan þarf að beita kænsku og sýna hugrekki til að takast ætlunarverk sitt. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Klaufa-Bárður var yngstur þriggja bræðra. Eldri bræðurnir tveir stríddu honum og skildu hann útundan. Eitt sinn, þegar eldiviðinn þvarr í kotinu, voru eldri bræður Bárðar sendir út í skóg til að sækja meira en báðir komu þeir tómhentir tilbaka. Bauðst þá Klaufa-Bárður til að fara út í skóg og sækja eldivið. Hefst þá mikil ævintýraför Klaufa-Bárðs þar sem kemur við sögu gamall maður, gullgæs ásamt konungi sem á sér þá ósk heitasta að koma dóttur sinni til að brosa og lofar hverjum þeim sem tekst það að giftast henni.Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Þegar lítil fátæk stúlka heldur út í skóg til að afla matar fyrir hana sjálfa og móður hennar verður á vegi hennar gömul kona sem færir henni ofurlítinn pott. Pottinum fylgir töfraþula sem framkallar dýsætan og gómsætan graut handa þeim mæðgum. Eitt sinn ákveður móðir stúlkunnar að fara með töfraþuluna og borðar sig sadda af grautnum. Það fer þó ekki betur en svo að móðir stúlkunnar veit ekki hvernig hún á að fá pottinn til að hætta grautargerðinni með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
Fra 9,99 kr. Skraddari nokkur átti þrjá syni og eina geit. Mjólkin frá geitinni var aðalfæða heimilisfólksins og þurfti því kjarngott fóður á hverjum degi. Þegar geitin tekur upp á því að ljúga því til að hún sé svöng og þreytt eftir dagsferðir sínar með sonunum þremur, rekur skraddarinn þá að heiman. Fljótlega rennur þó upp fyrir skraddaranum að hann hafi verið blekktur. Mörgum árum síðar halda synirnir þrír heim á ný og hyggjast færa föður sínum verðmætar gjafir sem búa yfir töframætti; kynjaborð, gullasna og kylfu. Þegar til kastanna kemur hafa gjafirnar misst allan töframátt og synirnir enn á ný ásakaðir um lygar. Nú eru góð ráð dýr og synirnir þrír þurfa að leysa gátuna um horfna töframáttinn og endurheimta orðstír sinn. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Í ævintýrinu um Fiðluleikarann furðulega segir frá hljóðfæraleikara sem leiðist óskaplega einveran í skóginum. Hann byrjar að spila á fiðluna sína og óskar í leið eftir félagsskap. Til hans koma úlfur, refur og héri sem öll eiga sér þá ósk heitasta að læra á hlóðfærið. Fiðluleikarinn kærir sig hins vegar ekki um félagsskapinn og þarf að finna leið til að losa sig við dýrin. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Einu sinni var gráðug hæna sem gleypti hnetu. Haninn ætlar að koma henni til bjargar með því að sækja vatn í brunninn. Brunnurinn neitar hins vegar að gefa hananum vatn nema hann færi honum silki brúðarinnar. Nú voru góð ráð dýr því brúðurin neitar að gefa hananum silkið nema hann færi henni brúðarkrans. Haninn þarf að bjarga hænunni en tíminn er að renna frá honum. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Í ævintýrinu um Smaladrenginn kemst kóngurinn á snoðir um snilligáfur hins ofursmáa smaladrengs og krefst þess að drengurinn skuli umsvifalaust kallaður til hallarinnar þar sem hann hyggst sannreyna orðróminn. Hann leggur þrjár spurningar fyrir unga drenginn sem fær að launum að verða konungssonur, en bara ef hann getur svarað þeim öllum. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Einu sinni var konungur sem þekktur var fyrir visku sína og speki. Á hverju kvöldi lét hann trúnaðarþjón sinn færa sér máltíð á lokuðum diski sem hann kaus að snæða í einrúmi. Þjónninn er forvitinn um þennan undarlega sið konungs og þegar hann kemst að hinu sanna um kvöldmáltíð konungs öðlast hann töframátt. Skyndilega skilur þjónninn öll dýrin í hallargarðinum. Þessi eiginleiki reynist mikill happafengur fyrir unga þjóninn sem lendir í útistöðum við konung og þarf að yfirgefa höllina. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Eftir 7 ára vist hjá húsbónda sínum þótti Hans kominn tími til að halda heim til móður sinnar. Hans hafði verið trúr og dyggur húsbónda sínum sem færði honum vænan gullhnullung að launum. Með níðþungan gullhnullunginn heldur Hans af stað heim á leið. Á leiðinni hittir hann nokkra vegfarendur sem bjóðast til að létta byrðinni af honum. Hann bíður ekki boðana og skiptir gullhnullungnum út fyrir hest, hestinum fyrir belju og beljunni skiptir hann út fyrir grís. Svona heldur hann áfram þar til hann stendur eftir allslaus - laus við allar byrðar.Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska
-
9,99 kr. Fátækur malari ákveður að gefa einum af sveinum sínum mylluna sína, enda orðinn gamall og þreyttur. Sá skyldi hreppa hnossið sem færði honum besta reiðskjótann. Eldri sveinarnir tveir stinga þann yngsta af, enda töldu þeir hann óttalegan bjálfa og ekki verðugan þess að eiga mylluna. Aleinn og ráfandi um skóginn hittir sá yngsti, sem nefndur var Bjálfa-Björn, bröndóttan kött sem lofar að gefa honum þann besta gæðing sem hann nokkru sinni hefur séð. Í staðinn þurfi Björn að ganga í þjónustu hans næstu sjö árin. Björn tekur boðinu og þjónustar bröndótta köttinn án þess að fá svo mikið sem nýja flík. Þegar Björn kemur að myllunni að sjö árum liðnum er hlegið að honum enda trúa hinir sveinarnir því tæplega að eftir þrjá daga verði Birni færður besti gæðingur sem sést hefur. Annað kemur þó á daginn og bröndótti kötturinn stendur við loforð sitt og gott betur. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska
-
9,99 kr. Aldraður konungur hyggst arfleiða syni sína að konungsríki sínu eftir sinn dag. Úr vöndu er að ráða því kóngurinn vill síður gera upp á milli þeirra. Hann ákveður því að láta happ ráða og sendir syni sína hvern í sína áttina til að finna og færa honum fallegasta dúkinn. Kóngurinn kastar þremur fjöðrum upp í loft. Fyrsta fjöðrin bar til austurs, önnur til vesturs og sú þriðja fór beint upp í loft og féll þar niður. Eldri synir konungs voru snöggir til og þutu hvor í sína áttina og skildu þann yngsta, Heimska Hannes eins og hann var kallaður, eftir með þriðju fjöðrina. Þar sem hann situr, þungt hugsi yfir örlögum sínum, finnur hann járnhlemm sem leiðir hann niður í dularfull jarðgöng. Við enda ganganna hittir hann froskamóður sem aðstoðar hann í baráttunni um að erfa konungsríkið. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
-
9,99 kr. Í ævintýrinu um Ríka manninn og fátæklinginn segir frá því þegar Drottinn, sem þá ferðaðist um meðal manna í jarðríki, fer í dulargervi og biður ríkan mann um næturgistingu. Sá ríki sér ekki fært um að hýsa Drottinn og vísar honum á dyr. Drottinn bankar þá upp á hjá fátæklingi sem býr á móti þeim ríka og er samstundis boðið inn. Drottinn launar örlæti fátæka mannsins með því að færa honum þrjár óskir. Þegar ríki maðurinn vaknar næsta dag sér hann hvar kofi fátæka mannsins er orðinn að fallegu húsi og kemst að hinu sanna um dularfulla förumanninn sem óskaði eftir næturgistingu. Fullur af eftirsjá ríður ríki maðurinn af stað til að biðja Drottinn afsökunar með von um að fá að launum þrjár óskir. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska
-
9,99 kr. Þegar refurinn segir úlfinum frá því að maðurinn sé svo sterkur að ekkert dýr eigi roð í hann segist úlfurinn þurfa að sannreyna staðhæfingu refsins. Úlfurinn er sannfærður um eigið ágæti en þegar hann hittir veiðimanninn fer gamanið að kárna. Refurinn stingur af í bælið sitt og úlfurinn þarf einn að kljást við veiðimanninn. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska
-
9,99 kr. Í draugasögunni um Tvíeyringinn segir frá aðkomumanni sem segist sjá barn ganga þegjandi um stofu hjónanna hvar hann er gestkomandi. Í fyrstu þekkja húsráðendur ekki til barnsins en átta sig fljótlega á því hver þarna gæti verið genginn aftur. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska
-
9,99 kr. Stjúpdóttir ríkrar ekkju stingur sig á snældu og missir hana ofan í brunn. Af ótta við að týna snældunni stekkur stúlkan ofan í brunninn og rankar við sér á grænni, blómskrýddri flöt. Stúlkan hittir vingjarnlega eldri konu sem býður henni húsaskjól gegn því að sinna heimilisstörfum. Þegar unga stúlkan óskar eftir því að fara aftur til síns heima launar konan henni ríkulega fyrir vel unnin störf og sendir hana af stað. Þegar ríka ekkjan sér ungu stúlkuna prýdda gullskrúði ákveður hún að senda dóttur sína að brunninum til að leika sama leikinn. Ferðalag hennar fer þó ekki eins og ætlað var enda boðskapur sögunnar skýr: Þú uppskerð eins og til var sáð. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.