Kristiansand

Filter
Filter
Sorter efterSorter Nyeste
  • - Norræn Sakamál 2003
    af Ýmsir
    20,99 kr.

    Þann 13. september 2000 boðaði lögreglan í Kristiansand til blaðamannafundar til þess að skýra frá því að hún hefði upplýst eitt hryllilegasta morðmál sem komið hafði til hennar kasta fyrr og síðar. Ódæðið hafði verið drýgt á Baneheia, útivis- tarsvæði rétt norðan við miðbæ Kristiansands. Tveim litlum stúlkum, átta og tíu ára, hafði verið nauðgað og þær myrtar. Tveir ungir menn voru ákærðir fyrir verk- naðinn.Þessi grein fjallar um þátt lögreglunnar í leitinni að stúlkunum meðan þeirra var saknað og það hvernig hún lagði kapp á að átta sig á öllum mannaferðum á þessum slóðum á þeim tíma og komst síðan að því hverjir höfðu framið þennan hræðilega glæp.Í bókunum „Norræn sakamál” segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.

  • af – Ýmsir
    Fra 9,99 kr.

    Þann 24. janúar árið 2000 var Nils Skaug, 32 ára, handtekinn í Kristiansand vegna gruns um stórfellt smygl á kókaíni og öðrum fíkniefnum. Lögreglan fékk lausn málsins næstum því upp í hendurnar á silfurfati. Fyrst um sinn hafði hún rangan mann í sigtinu en hún fann nefnilega dagbók sem Skaug hafði skrifað í nákvæm minnisatriði um smyglstarfsemi sína, lúxuslíf og villt samkvæmi í Acapulco. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ástæðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.