Bøger i Norræn Sakamál serien
-
Fra 9,99 kr. Málið sem hér um ræðir, fjallar um innflutning á hassi til Íslands frá Danmörku. Höfuðpaurinn í málinu, Ari Andrason, sem er vel þekktur úr fíkniefnaheiminum hér á landi, hefur yfirleitt þann háttinn á að koma málum þannig fyrir að ef allt fer á versta veg eru það ávalt einhverjir minni spámenn sem sitja í súpunni.Þetta mál var engin undantekning hvað það varðar en þar koma m.a. við sögu hlaðmenn er störfuðu hjá Flugleiðum á Keflavíkurflugvelli.Sá háttur er yfirleitt hafður á við rannsóknir stærri fíkniefnamála að þau fá heiti sem hefur skírskotun í viðkomandi mál og í þessu tilfelli var ákveðið að láta það heita „Hlaðmannamálið".Þetta mál er ekkert ólíkt mörgum öðrum fíkniefnamálum þar sem höfuðpaurarnir nýta sér neyð annarra til að taka þátt og ef illa fer þá er yfirleitt reynt að koma málum þannig fyrir að þessir ógæfumenn taki á sig alla sök.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
-
Fra 9,99 kr. Í sívaxandi greiðslukortavæðingu, þar sem reiðufé fer að vera æ sjaldséðara, verða rafrænar upplýsingar um greiðslukort æ oftar skotmörk óprúttinna aðila. Eftir miklu er að slægjast og getur tjón af heppnuðum afritunum einungis örfárra greiðslukorta numið milljónum króna. Í nóvembermánuði 2006 freistuðu tveir erlendir menn gæfunnar í þessum efnum hér á landi en höfðu ekki erindi sem erfiði. Lauk þar með að öllum líkindum löngum og farsælum ferli þeirra við þessa iðju víðs vegar um Evrópu.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
-
Fra 9,99 kr. Sá hörmulegi atburður gerðist í maí 2001 í Reykjavík að barn lést af völdum heilaáveka sem rekja mátti til þess að það var hrist heiftarlega. Læknar á Landsspítala, þar sem barnið lést, sögðu lögreglu frá grunsemdum sínum um að barnið hefði verið hrist og áverkar bentu til einkenna „Shaken Baby Syndrome". Það var síðar staðfest með krufningu og sérfræðirannsókn á sýnum úr hinum látna. Böndin bárust fljótlega að dagforeldrum þar sem barnið hafði verið í daggæslu. Um var að ræða fyrsta mál sinnar tegundar sem lögreglan á Íslandi rannsakaði.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
-
Fra 9,99 kr. Atburðarásin hófst með „venjulegum" gámabruna um mitt sumarið 2006. Þá gat enginn gert sér í hugarlund að þetta væri upphafið að tíu mánaða langri rannsókn þar sem 16 eldsvoðar voru rannsakaðir.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
-
Fra 9,99 kr. Það skrítnasta í starfi lögreglumanna, er sú staðreynd að sjaldnast er vitað hvaða mál verða stórmál fyrr en rannsókn er vel á veg komin. Þess vegna þarf að sinna öllum málum vel, því aldrei er að vita hvert þau leiða. Ég ætla að segja ykkur frá einu slíku máli sem naut töluverðrar fjölmiðlaumfjöllunar þegar það var komið á dómstig og ekki síður eftir að dómur féll: Héraðsdómslögmaður sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn þremur ungum stúlkum.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
-
Fra 9,99 kr. Árin 2005 og 2006 eru höfundi minnisstæð enda fékkst hann þá við lögreglu- rannsóknir tveggja mála sem vöktu óhug þrautreyndra lögreglumanna. Hvernig gat hegðun slíks ljúflings orðið sem raun bar vitni í návist þeirra kvenna sem hann komst í tæri við? Hegðun sem bar vott um mannvonsku, illsku og djúpstæða kvenfyrirlitningu. Þessari spurningu verður seint svarað. Vissulega væri fróðlegt fyrir vísindamenn að skoða lífssögu þessa manns og finna orsök ógæfu hans.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
-
Fra 9,99 kr. „Leyndir kraftar hins illa gera fólki kleift að fara lengra en villtustu draumar ná." (Eugen Kogon.)Það er ekki óþekkt að fólk ákveði að binda enda á líf sitt ásamt því að taka líf annarra. Hvað veldur er erfitt að segja. Fyrir flest okkar er erfitt, ef ekki ómögulegt að skilja þetta. Í mörgum tilfellum er um það að ræða að foreldrar taka líf barna sinna og síðan sitt eigið líf. Þess konar atburðir gerast oft í trúarhópum. Líka hefur komið fyrir að ungt fólk hafi gert það sama.Það mál sem nú verður sagt frá snýst ekki um trú heldur um það hvernig maður reynir á afar skipulagðan hátt að koma eiginkonu sinni fyrir kattarnef. Hann sannfærir konuna um að þau muni bæði deyja til að fara í nýja vídd þar sem ekkert illt fyrirfinnst.Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.